• 1. Velja Barnaskrín

    Veldu Barnaskrín til að byrja á og hentar aldri barnsins. Hægt er að velja áskrift eða staka pakka.

  • 2. Afhending

    Fáðu vöruna beint heim að dyrum. Ef þú valdir áskrift þá færðu næstu Barnaskrín heim að dyrum á 2 mánaða fresti.

  • 3. Leikið saman

    Leikföngin eru hönnuð til að örva þroska og færni barna. Með Barnaskríni er verið að ýta undir nánd og tengsl foreldra við börnin.

Barnaskrín #1

0-2 mánaða

Á fyrstu mánuðum lífsins er barnið að kynnast nýjum heimi utan móðurkviðs. Þessi pakki er sérstaklega hannaður til að styðja við þroskastig barnsins með leikföngum sem örva sjón, skynjun og hreyfigetu á öruggan og skemmtilegan hátt.

Velja Barnaskrín #1

Barnaskrín #2

3-4 mánaða

Pakkinn styður við vaxandi forvitni barnsins með leikföngum sem tekur tillit til þroska og getu. Barnið fær tækifæri til að æfa sig á mismunandi hátt. Þetta er fullkominn pakki fyrir forvitna litla könnuði sem eru að taka sín fyrstu skref í leik og lærdómi.

Velja Barnaskrín #2

Barnaskrín #3

5-6 mánaða

Pakkinn styður við aukna hreyfifærni og skynjun barnsins þegar það byrjar að kanna heiminn af meiri sjálfstæði. Leikföngin hjálpa barninu að æfa griphreyfingar, kanna mismunandi áferðir og læra um orsök og afleiðingar með skemmtilegum leikjum.

Velja Barnaskrín #3

Barnaskrín #4

7-8 mánaða

Á þessu þroskastigi þróast fínhreyfingar og samhæfing handa og augna hratt. Þau sýna aukinn áhuga á orsakasamhengi og lausnaleit. Leikföng sem styðja við þessa þroskaþætti, svo sem boltaþrautir, staflanlegir kubbar og myndaspjöld, hvetja til aukinnar einbeitingar og samspils skynfæra.

Velja Barnaskrín #4

Barnaskrín #5

9-10 mánaða

Pakkinn styður við þróun fínhreyfinga, rýmisskynjunar og lausnaleitar þegar barnið eykur færni sína í að rannsaka og skilja umhverfi sitt. Leikföngin hvetja til nákvæmari handa- og augnsamræmingar, eflir skilning á stærðum, formum og orsakasamhengjum og stuðlar að aukinni einbeitingu í gegnum virkan leik.

Velja Barnaskrín #5

Barnaskrín #6

11-12 mánaða

Pakkinn styður við sjálfstæði, lausnaleit og vandvirkni í fínhreyfingum sem er lykilatriði á þessum aldri. Börn á þessu stigi sýna aukinn skilning á orsök og afleiðingu. Leikföngin hvetja til skynrænnar örvunar, samhæfingar handa og augna og fyrstu skrefa í táknrænum leik, sem styrkir bæði vitsmunalegan og félagslegan þroska.

Velja Barnaskrín #6
  • Þroskastig barna

    Hvert leikfang er sérsniðið að hverju þroskastigi barnsins sem styrkir skyn- og hreyfiþroska barna frá 0-12 mánaða.

  • Öryggi & Sjálfbærni

    Leikföng í samræmi við CE, ASTM og EN71 staðla. FSC®-vottun, og handmáluð með ECO vatnsmálningu.

  • Nánd foreldra & barna

    Fáðu vandlega valin þroskaleikföng fyrir börn á aldrinum 0-12 mánaða beint heim að dyrum.