Um áskriftir

Áskrift að Barnaskrín

Með áskrift fæst 10% afsláttur af fyrsta pakka.

Barnaskrín pakkarnir eru sérhannaðir fyrir börn á aldrinum 0–18 mánaða. Hver pakki inniheldur 5–6 vandaðar vörur sem styðja við þroska barnsins á hverju þroskastigi.

Í boði eru eftirfarandi pakkar:

  • 0-2 mánaða
  • 3-4 mánaða
  • 5-6 mánaða
  • 7-8 mánaða
  • 9-10 mánaða
  • 11-12 mánaða
  • 13-15 mánaða
  • 16-18 mánaða

Byrjað er á að velja þann pakka sem hentar ykkur best og smella á „Kaupa áskrift“. Að því loknu er farið á greiðslusíðu Repeat, þar sem greitt er AÐEINS fyrir fyrsta pakkann. Pakkinn berst innan 1–4 virkra daga frá pöntun, annað hvort með heimsendingu eða á dropp-afhendingarstað. Einnig er hægt að sækja frítt á lager eftir samkomulagi.

Eftir það verður kortið þitt rukkað á tveggja mánaða fresti þar til síðasti pakkinn hefur verið greiddur (16–18 mánaða pakkinn). Hægt er að gera hlé á eða segja upp áskrift hvenær sem er, annað hvort með því að senda okkur tölvupóst á barnaskrin@barnaskrin.is eða með því að skrá sig inn á Mínar síður (einnig er hægt að breyta um dagsetningu á afhendingu inn á Mínum síðum).

Ef þú ert óviss um hvaða pakki hentar þínu barni, er þér velkomið að senda okkur skilaboð með fæðingardegi eða áætluðum fæðingardegi barnsins. Við aðstoðum þig með ánægju við að velja réttan pakka 💚🧸

 

Skoðaðu áskrift