Um okkur
Lítið fjölskyldufyrirtæki með stóran tilgang
Við erum lítið fjölskyldufyrirtæki sem varð til út frá áhuga okkar á þroska eigin barna og þörfinni fyrir meiri umræðu og fræðslu um fyrstu æviárin. Markmið okkar er að veita foreldrum gagnlegar leiðbeiningar og styðja við heilbrigðan þroska með vönduðum leikföngum sem örva nám í gegnum leik.
Okkar gildi
Allt sem við gerum byggir á nokkrum einföldum gildum sem leiðbeina okkur.
-
Montessori
Við sækjum innblástur í Montessori-hugmyndafræðina þar sem barnið lærir sjálfstætt í gegnum leik og uppgötvun.
-
Gæði
Við veljum aðeins vönduð, örugg og endingargóð leikföng úr náttúrulegum efnum sem standast tímans tönn.
-
Fjölskyldan í fyrirrúmi
Sem fjölskyldufyrirtæki skiljum við hversdaginn með börnum og leggjum okkur fram um persónulega og hlýja þjónustu.