Skilmálar
Með því að versla við okkur ert þú bundinn af eftirfarandi skilmálum og skilyrðum, þar með talin viðbótar skilyrði og stefnu sem vísað er til hér og/eða eru aðgengilegar með hlekkjum. Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra, breyta eða skipta út einhverjum hluta af þessum skilmálum með því að birta uppfærslu á vefsíðu okkar. Það er á þinni ábyrgð að athuga hvort breytingar hafi orðið á skilmálunum. Með því að halda áfram að nota vefsíðuna eftir að breytingar hafa verið birtar, samþykkir þú þær breytingar.
Þessir skilmálar gilda fyrir alla notendur og viðskiptavini Barnaskrín. Vinsamlega lesið skilmála vandlega áður en haldið er áfram á vefsíðu okkar.
Fyrirvari
Allar upplýsingar sem birtast á vefsíðu Barnaskrín, þar á meðal birgðastaða, verð, vörulýsingar o.fl., eru birtar með fyrirvara um villur. Barnaskrín áskilur sér rétt til að hafna pöntunum eða breyta afhendingartíma ef þess er þörf.
Gagnavistun
Allar upplýsingar sem þú gefur upp við kaup á vörum eru vistaðar í gagnagrunni Barnaskrín. Persónuupplýsingar sem þú skráir við kaup verða aðeins notaðar til að uppfylla pöntunina og veita viðeigandi þjónustu. Við munum ekki deila þessum upplýsingum með þriðja aðila nema í samræmi við persónuverndarlög.
Afhending vöru
Öllum pöntunum verður dreift í gegnum samstarfsaðila okkar. Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar þessara aðila gilda um afhendingu vörunnar. Skilmálar þeirra eru aðgengilegir á viðkomandi vefsíðu.
Skilafrestur/Endurgreiðsla/Gölluð vara
Við bjóðum upp á skil og endurgreiðslu á Barnaskríni innan 14 daga frá kaupum ef varan uppfyllir eftirfarandi skilyrði: Varan þarf að vera ónotuð, í upprunalegum og óskemmdum pakkningum. Við ábyrgjumst ekki skil á vörum sem hafa verið notaðar. Endurgreiðsla verður framkvæmd innan 10 daga frá móttöku vörunnar. Ef vara er gölluð, munum við bjóða upp á viðeigandi úrræði samkvæmt lögum um neytendakaup. Vinsamlega athugið að við endurgreiðum ekki sendingarkostnað. Hægt er að lesa nánar um skil undir Spurningar. Til að skila vöru, vinsamlega hafið samband við okkur í tölvupósti á barnaskrin@barnaskrin.is áður en varan er send til baka.
Áskrift
Ef þú velur áskriftaleið, er binditími 2 skipti, nema annað sé sérstaklega tekið fram í samningi við kaupanda. Vinsamlega sendið okkur tölvupóst á barnaskrin@barnaskrin.is ef óskað sé að hætta í áskrift.
Skattar og gjöld
Öll verð á vefsíðu Barnaskríns innihalda virðisaukaskatt. Aukaskattar eða gjöld sem kunna að koma upp vegna afhendingar eru greidd af kaupanda.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður fer eftir afhendingarmáta sem þú velur við pöntun. Kostnaðurinn verður sýndur við kaup á vöru.
Trúnaður
Við heitum því að gæta fulls trúnaðar varðandi allar þær upplýsingar sem þú gefur upp við kaup á vörum frá Barnaskrín. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema ef það er krafist samkvæmt lögum.
Notkun á persónuupplýsingum
Við notum persónuupplýsingar (t.d. netfang, heimilisfang, viðskiptasögu o.fl.) til að bæta þjónustu okkar og senda þér viðeigandi upplýsingar og tilboð. Þessar upplýsingar verða aldrei afhentar þriðja aðila. Þú getur alltaf afskráð þig af póstlista okkar.
Öryggi
Við tryggjum að allar vörur sem seldar eru í Barnaskrín séu öruggar og uppfylli öryggiskröfur samkvæmt íslenskum lögum. Það er á ábyrgð kaupanda að tryggja að varan sé notuð í samræmi við viðeigandi aldursviðmið og öryggisleiðbeiningar.
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Ef ágreiningur kemur upp vegna skilmálanna eða viðskiptanna, skal málið rekið fyrir íslenskum dómstóli. Skilmálar okkar falla undir lög um neytendasamninga nr. 16/2016 og lög um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 hefst þegar vara er móttekin.
Með því að kaupa vörur frá Barnaskrín, samþykkir þú alla skilmála hér að ofan.
Barnaskrín áskilur sér allan rétt.
Ef þú hefur frekari spurningar, ekki hika við að hafa samband.
Sendu okkur tölvupóst á barnaskrin@barnaskrin.is